The post Mosfellsbær tekur ATVIK í notkun appeared first on Áhættustjórnun.
]]>Mosfellsbær hefur nú hafið innleiðingu á atvikaskráningarkerfinu ATVIK, sem styður við markvissa skráningu atvika og stöðugar umbætur í starfsemi sveitarfélagsins.
Með innleiðingu á ATVIK fær Mosfellsbær öflugt verkfæri til að skrá og vinna með atvik og ábendingar – og er markmiðið að efla öryggi, bæta verklag og skapa sterka umbótamenningu þar sem lærdómur af atvikum nýtist til að gera góða starfsemi enn betri. Þannig verður vinnuumhverfið öruggara og forvarnarstarf styrkist.
Sveitarfélög gegna mikilvægu hlutverki í þjónustu við íbúa og því skiptir miklu máli að hafa skýrar leiðir til að halda utan um og læra af atvikum, ásamt því að fyrirbyggja frekari atvik á sem öflugastan hátt. Sífellt fleiri sveitarfélög eru að nýta sér stafræna lausn okkar til að einfalda ferla og efla forvarnir á starfsstöðvum sínum og með notkun á ATVIK styður Mosfellsbær við markvissa uppbyggingu og þróun á öryggis- og gæðamálum í starfsemi sinni.
Við hjá Áhættustjórnun fögnum samstarfinu við Mosfellsbæ og hlökkum til að styðja sveitarfélagið í áframhaldandi styrkingu öflugrar umbóta- og öryggismenningar.
The post Mosfellsbær tekur ATVIK í notkun appeared first on Áhættustjórnun.
]]>The post Molta innleiðir ATVIK appeared first on Áhættustjórnun.
]]>Jarðgerðarstöðin Molta innleiddi nýlega hjá sér ATVIK atvikaskráningarkerfið í samstarfi við sérfræðinga Áhættustjórnunar. Með innleiðingu á ATVIK mun Molta auðvelda skráningu atvika, greiningu þeirra og eftirfylgni, og þannig styðja við vinnuvernd starfsmanna og auka öryggi í starfsemi fyrirtækisins.
Molta er smár en öflugur viðskiptavinur okkar, og sýnir vel hvað ATVIK hentar fjölbreyttum fyrirtækjum – bæði hvað varðar starfssvið og fjölda starfsmanna.
Við óskum starfsfólki og stjórnendum Moltu velfarnaðar í notkun á ATVIK og hlökkum til að styðja þau við að efla öryggisstjórnun og forvarnir á vinnustaðnum.
The post Molta innleiðir ATVIK appeared first on Áhættustjórnun.
]]>The post Tímamótaár að baki – nýjungar framundan í ATVIK appeared first on Áhættustjórnun.
]]>Við þökkum ykkur kærlega fyrir traustið og gott samstarf á árinu sem er að líða. Árið hefur verið tímamótaár hjá Áhættustjórnun, þar sem við tókum yfir rekstur og þróun atvikaskráningarkerfisins ATVIK. Nýja árið verður ár nýjunga í ATVIK, með áframhaldandi þróun í nánu samráði við notendur og viðskiptavini.
Strax á nýju ári má búast við spennandi tíðindum í öryggisvegferð Áhættustjórnunar, þar sem markmiðið er áfram skýrt: að stuðla að öruggari vinnustöðum og öruggara Íslandi.
Með bestu kveðju og ósk um farsælt nýtt ár,
Teymið í Áhættustjórnun





The post Tímamótaár að baki – nýjungar framundan í ATVIK appeared first on Áhættustjórnun.
]]>The post Brákarhlíð í Borgarnesi innleiðir ATVIK appeared first on Áhættustjórnun.
]]>Með innleiðingu á ATVIK mun Brákarhlíð auðvelda skráningu atvika og greiningu með rauntímagögnum og gagnvirku mælaborði. Þá eykst möguleikinn til að hrinda í framkvæmd umbótaverkefnum með það að markmiði að tryggja öruggt og faglegt umhverfi fyrir íbúa og starfsfólk.
Við hlökkum til samstarfsins og að styðja Brákarhlíð í áframhaldandi vinnu við að efla öryggi, gæði og þjónustu í starfsumhverfinu. Við óskum starfsfólki og íbúum Brákarhlíðar velfarnaðar með þetta nýja skref – saman leggjum við grunn að enn öflugri forvörnum og öryggisstjórnun á vinnustaðnum.
The post Brákarhlíð í Borgarnesi innleiðir ATVIK appeared first on Áhættustjórnun.
]]>The post Ógn og ofbeldi á vinnustöðum – hvað er til ráða? appeared first on Áhættustjórnun.
]]>Einn mikilvægasti þátturinn í viðbrögðum við ógn og ofbeldi á vinnustöðum er kerfisbundin skráning atvika. Þegar atvik eru skráð og greind markvisst skapast yfirsýn sem gerir unnt að grípa til sértækra forvarna og auka öryggi starfsfólks. Þannig er hægt að byggja upp trausta vinnustaðamenningu þar sem öryggi og vellíðan eru í fyrirrúmi.
Vísir birti nýlega áhugaverða grein frá Gísla Níls framkvæmdastjóra Áhættustjórnunar, þar sem hann vakti athygli á þessu mikilvæga málefni sem er aukið ógn og ofbeldi á vinnustöðum, til dæmis í skólakerfinu og þjónustustörfum.
Við hvetjum alla til að lesa þessa athyglisverðu grein
https://www.visir.is/g/20252794967d/ogn-og-ofbeldi-a-vinnustodum-hvad-er-til-rada
The post Ógn og ofbeldi á vinnustöðum – hvað er til ráða? appeared first on Áhættustjórnun.
]]>The post Akureyrarbær innleiðir ATVIK appeared first on Áhættustjórnun.
]]>Akureyrarbær hefur ákveðið að innleiða atvikaskráningarkerfið ATVIK frá Áhættustjórnun. Með innleiðingunni mun ATVIK vera mikilvægur hluti af vinnuverndar- og forvarnastarfi í starfsemi sveitarfélagsins.
Kerfið gerir starfsmönnum sveitarfélagsins kleift að skrá ábendingar, næstum slys, vinnuslys, ógn sem starfsmenn geta orðið fyrir í vinnu sinni sem og slys á skólabörnum. Þannig er unnt að greina tækifæri til úrbóta og stuðla að öruggara vinnuumhverfi.
„Við ákváðum að velja ATVIK vegna þess hve auðvelt það er í notkun fyrir starfsmenn. Þeir munu geta skráð atvik í miðlægt atvikaskráningarkerfi gegnum snjalltæki sín hvenær og hvar sem er á öruggan hátt. ATVIK mun veita okkur mikilvæga heildarsýn á atvikum til að efla allt forvarnarstarf og tryggja að lærdómur dragist af atvikum og að farið sé í úrbætur“ segir Halla Margrét Tryggvadóttir, sviðsstjóri mannauðssviðs Akureyrarbæjar”.
„Við erum stolt af því að Akureyrarbær skuli velja ATVIK til að styðja við sitt mikilvæga öryggisstarf. Þetta samstarf sýnir hvernig sveitarfélög geta nýtt stafrænar lausnir til að einfalda ferla og efla forvarnir á vinnustöðum. Við munum fylgja innleiðingunni eftir með nánu samstarfi og tryggja að Akureyrarbær fái hámarksárangur af notkun kerfisins.“ segir Gísli Níls Einarsson, framkvæmdastjóri Áhættustjórnunar.
Akureyrarbær bætist hér í hóp fjölmargra sveitarfélaga og fyrirtækja sem nýta ATVIK til að efla öryggi og vinnuvernd starfmanna í sínum rekstri – og við bjóðum Akureyrarbæ innilega velkominn í ATVIK.
The post Akureyrarbær innleiðir ATVIK appeared first on Áhættustjórnun.
]]>The post ATVIK styður forvarnir gegn ógn og ofbeldi á vinnustöðum appeared first on Áhættustjórnun.
]]>ATVIK er stafrænt atvikaskráningarkerfi sem styður fyrirtæki og sveitarfélög í að byggja upp öruggara vinnuumhverfi með kerfisbundinni skráningu og greiningu á öllum atvikum sem tengjast ógn, áreitni eða ofbeldi. Með gagnvirku mælaborði og greiningartólum geta stjórnendur fylgst með þróun mála í rauntíma, greint mynstur og gripið tímanlega til fyrirbyggjandi aðgerða.
„Kerfisbundin skráning er fyrsta skrefið í að sjá heildarmyndina og geta brugðist við á faglegan hátt,“ segir Gísli Níls, framkvæmdastjóri Áhættustjórnunar „ATVIK gerir stjórnendum kleift að sjá hvað er raunverulega að gerast á vinnustaðnum, tryggja stuðning við starfsfólk og efla forvarnir gegn ofbeldi og áreitni.“
ATVIK er þegar notað af fjölmörgum sveitarfélögum og fyrirtækjum um land allt, þar sem það hefur reynst lykilverkfæri í að efla öryggismenningu og forvarnastarf.
Nánari upplýsingar um lausnina má finna á www.astjórnun.is/atvik
The post ATVIK styður forvarnir gegn ógn og ofbeldi á vinnustöðum appeared first on Áhættustjórnun.
]]>The post Samstarf Sjóvá og Áhættustjórnunar tryggir sérkjör á ATVIK appeared first on Áhættustjórnun.
]]>Áhættustjórnun og Sjóvá hafa gert með sér samstarfssamning sem tryggir viðskiptavinum Sjóvá sérkjör á notkun atvikaskráningarkerfisins ATVIK. Með samningnum fá fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög sem eru í viðskiptum við Sjóvá hagstæðan aðgang að öflugu kerfi til að skrá, greina og læra af atvikum í starfsemi sinni.
Samkvæmt samningnum njóta viðskiptavinir Sjóvá afsláttar af innleiðingarþjónustu, almennri verðskrá og mánaðargjaldi kerfisins. Mánaðargjaldið miðast við fjölda starfsmanna á hverjum vinnustað, þannig að kerfið hentar jafnt smærri sem stærri einingum.
Með því að nýta ATVIK við skráningar á ábendingum, næstum slysum og slysum, greina hættur og framkvæma úrbætur, geta viðskiptavinir Sjóvá dregið úr líkum á tjónum og aukið öryggi í sínum rekstri.
Samstarfið fellur vel að áherslum Sjóvá á forvarnir og öryggi og styður við markmið beggja fyrirtækja um að draga úr slysum og tjónum með markvissri skráningu og greiningu atvika.
Fyrir frekari upplýsingar um samstarfið eða hvernig hægt er að nýta sér sérkjörin, hafðu samband við okkur á [email protected] eða við tengilið þinn hjá Sjóvá.

Á myndinni sjást Heiður Huld Hreiðarsdóttir, forstöðumaður fyrirtækjaráðgjafar Sjóvár og Gísli Níls Einarsson, framkvæmdastjóri Áhættustjórnunar og sérfræðingur í öryggismálum, innsigla samning um sérkjör fyrir viðskiptavini Sjóvá.
https://www.sjova.is/sjova/upplysingagjof/fjolmidlar/frettir/2025/atvik-fyrir-vidskiptavini
The post Samstarf Sjóvá og Áhættustjórnunar tryggir sérkjör á ATVIK appeared first on Áhættustjórnun.
]]>The post Síldarvinnslan innleiðir Atvik appeared first on Áhættustjórnun.
]]>Síldarvinnslan hf. skrifaði undir samning um að innleiða ATVIK sem hluta af öryggisstjórnkerfi fyrirtækisins í landsstarfsemi sinni, á íslensku Sjávarútvegssýningunni í vikunni.
Hákon Ernuson mannauðsstjóri og Páll Freysteinsson öryggisstjóri SVN skrifaðu undir samninginn ásamt Gísla Níls framkvæmdastjóra Áhættustjórnunar.
Við erum stolt af því að fá Síldarvinnsluna í okkar flotta viðskiptamannahóp í öryggisvegferð okkar að Öruggara Íslandi!

The post Síldarvinnslan innleiðir Atvik appeared first on Áhættustjórnun.
]]>The post ATVIK heldur til fjalla – Mountaineers stíga skref í átt að öruggari ferðaþjónustu appeared first on Áhættustjórnun.
]]>Mountaineers of Iceland er sömuleiðis einn af samstarfsaðilum Áhættustjórnunar í að aðlaga atvikaskráningarkerfið ATVIK fyrir ferðaþjónustuaðila til að halda utan um slys á ferðamönnum og hættur á áfangastöðum ferðamanna.
Innleiðingarferlið á ATVIK er hafið hjá Mountaineers í samstarfi við sérfræðinga Áhættustjórnunar.

Á myndinni eru Gísli Níls Einarsson framkvæmdastjóri Áhættustjórnunar, og Viktoría Hlíf Theódórsdóttir og Snæbjörn Kári Stefánsson vaktstjórar hjá Mountaineers of Iceland.
The post ATVIK heldur til fjalla – Mountaineers stíga skref í átt að öruggari ferðaþjónustu appeared first on Áhættustjórnun.
]]>