KLAK https://klak.is Icelandic Startups Tue, 10 Mar 2026 14:57:16 +0000 is hourly 1 https://wordpress.org/?v=6.9.4 https://klak.is/wp-content/uploads/2022/01/favicon-2.png KLAK https://klak.is 32 32 Loftslagssamtal með nýsköpunarsamfélaginu https://klak.is/loftslagssamtal-med-nyskopunarsamfelaginu/ Tue, 10 Mar 2026 12:16:16 +0000 https://klak.is/?p=169446 Reykjavíkurborg, nýsköpunarsamfélagið og frumkvöðlar sameinuðu krafta í Grósku til að ræða hvernig við náum markmiðum um kolefnishlutlausa höfuðborg 2030. Á fundinum komu fram fjölbreyttar lausnir og hugmyndir frá öflugum aðilum í vistkerfinu – allt frá Hringiðu og Fab Lab til háskólasamfélagsins og stærstu viðburða nýsköpunar á Íslandi. Þetta loftslagssamtal sýnir hversu öflugt samfélag skapandi hugmynda og frumkvöðlastarfs er orðið – og hversu mikilvæg ný tækifæri til samstarfs eru fyrir þá sem vilja taka þátt í að móta grænni framtíð.

Viðburður í Grósku þar sem kynntur er loftslagsborgarsamningur Reykjavíkurborgar fyrir nýsköpunarsamfélaginu í borginni.
]]>
Hugmyndahraðhlaup í heilsutækni haldið í annað sinn: Nýjar áskoranir kynntar https://klak.is/hugmyndahradhlaup-i-heilsutaekni-haldid-i-annad-sinn-nyjar-askoranir-kynntar/ Mon, 09 Mar 2026 16:42:12 +0000 https://klak.is/?p=168940 Við bjóðum frumkvöðlum, nemum, fagfólki og öllum áhugasömum að taka þátt í kraftmiklu hugmyndahraðhlaupi þar sem nýsköpun í heilsutækni er í forgrunni. Markmiðið er að móta lausnir sem geta raunverulega bætt þjónustu, aðgengi og upplifun fólks í heilbrigðiskerfinu.

Hugmyndahraðhlaupið fer fram dagana 13. – 14. mars 2026 í Grósku og nú hafa áskoranirnar sem unnið verður með verið opinberaðar.

Í tveggja daga hraðhlaupi vinna þátttakendur í teymum að nýjum lausnum fyrir raunverulegar áskoranir í heilsutækni. Þau fá handleiðslu frá sérfræðingum, læra að móta og skerpa á hugmyndinni og fá tækifæri til að kynna lausnirnar fyrir dómnefnd. Vegleg verðlaun bíða sigurvegara, en ekki síður opnast tækifæri til áframhaldandi þróunar, tengslanets og samstarfs.

Takmarkaður sætafjöldi – skráning er nauðsynleg og fyrstur kemur, fyrstur fær.

Áskoranirnar sem teymið þitt getur tekist á við

Landsspítali

Hvernig getum við gert það einfaldara fyrir eldra fólk, aðstandendur þeirra og fagfólk að finna, sækja um og samræma þá þjónustu sem þarf þegar þjónustuþörf eykst?

Heilbrigðisráðuneytið

Hvernig getum við nýtt gögn, tækni og nýjar nálganir til að bæta tímabókanir með áherslu á mat og forgangsröðun þjónustu fyrir almenning?

Stafrænt Ísland

Stafrænt Ísland óskar eftir notendalausn til að styðja við einstaklinga í skilgreindri meðferð þannig að þeir geti verið virkir þátttakendur í sinni meðferð og eigi auðvelt með að leita sér viðeigandi aðstoðar.

Opinn flokkur

Við leitum að skapandi og framsæknum heilsutæknilausnum sem geta bætt aðgengi, skilvirkni og gæði heilbrigðisþjónustu fyrir öll.

Fyrir hverja er hugmyndahraðhlaupið?

Hugmyndahraðhlaupið hentar öllum sem hafa áhuga á nýsköpun og heilsutækni – hvort sem þú ert að stíga fyrstu skrefin með lausn, ert með lengra komna hugmynd, vinnur innan heilbrigðiskerfisins eða kemur úr allt öðrum geira en sérð tækifæri til umbóta. Þú þarft ekki að vera með fullmótað teymi til að taka þátt – forvitni, lausnamiðuð hugsun og vilji til samvinnu duga mjög langt.

Af hverju að taka þátt?

Í hugmyndahraðhlaupinu færð þú:

  • tækifæri til að vinna með raunverulegar áskoranir úr íslenska heilbrigðiskerfinu,
  • handleiðslu og endurgjöf frá sérfræðingum í nýsköpun og heilsutækni,
  • vettvang til að prófa og kynna hugmyndir fyrir dómnefnd,
  • og ekki síst – ný tengsl við aðra þátttakendur, leiðbeinendur og lykilaðila í vistkerfi nýsköpunar.

Skráning – fyrstur kemur, fyrstur fær

Nauðsynlegt er að skrá sig til þátttöku og er sætafjöldi takmarkaður. Skráning fer fram hér:

Hvetjum við alla sem brenna fyrir betra, aðgengilegra og skilvirkara heilbrigðiskerfi til að taka þátt, prófa hugmyndirnar sínar í verki og leggja sitt af mörkum til nýsköpunar í heilsutækni.

]]>
Lava Show hlýtur Heiðursverðlaun Gulleggsins 2026 https://klak.is/lava-show-hlytur-heidursverdlaun-gulleggsins-2026/ Fri, 06 Mar 2026 13:30:48 +0000 https://klak.is/?p=166231 Lava Show hefur hlotið Heiðursverðlaun Gulleggsins 2026, viðurkenningu sem veitt er fyrirtæki sem náð hefur eftirtektarverðum árangri þrátt fyrir að hafa ekki unnið Gulleggið á sínum tíma. Verðlaunin voru afhent við lokahóf Gulleggsins í ár.

Tíu ár frá fyrstu hugmynd

Það er liðið áratugur síðan stofnendur Lava Show tóku fyrst þátt í Gullegginu með þá hugmynd að búa til lifandi sýningu sem sýnir íslenska eldvirkni á öruggan og aðgengilegan hátt. Þau komust þá í topp 10 lokahópinn, en hlutu ekki verðlaun.

Síðan þá hefur Lava Show vaxið úr hugmynd á blaði í einstaka upplifun sem hundruð þúsunda gesta hafa upplifað. Sýningin hefur fest sig í sessi sem einn af áhugaverðari áfangastöðum ferðamanna og heimafólks sem vilja kynnast krafti eldfjallanna á nýjan hátt.

Viðurkenning á þrautseigju og trú á verkefnið

Með Heiðursverðlaunum Gulleggsins er lögð áhersla á þrautseigju, trú á eigin hugmynd og þá staðreynd að árangur í nýsköpun er oft langhlaup en ekki spretthlaup. Saga Lava Show er skýrt dæmi um hvernig frumkvöðlar geta, með mikilli vinnu, umbreytt hugmynd í verðmætt fyrirtæki sem skapar störf, tekjur og sérstöðu fyrir íslenskt samfélag.

Gulleggið sem stökkpallur fyrir sprota

Gulleggið, sem KLAK – Icelandic Startups stendur að, er stærsta frumkvöðlakeppni landsins og hefur í gegnum árin verið mikilvægur vettvangur fyrir hundruð íslenskra hugmynda og sprotafyrirtækja. Heiðursverðlaunin undirstrika mikilvægi þess að fylgja eftir teymum til lengri tíma og sýna fram á þann árangur sem getur orðið til með samvinnu, handleiðslu og sterku vistkerfi nýsköpunar.

Með Heiðursverðlaunum Gulleggsins 2026 er Lava Show heiðrað fyrir að byggja upp öflugt og einstakt fyrirtæki á sviði upplifunarferðaþjónustu, sem um leið er óður til íslenskrar náttúru, og lifandi sönnun þess að góðar hugmyndir hætta ekki að vera góðar þó þær vinni ekki strax.

/

]]>
Hringiða: Síðustu forvöð til að sækja um í viðskiptahraðal fyrir grænar lausnir https://klak.is/hringida-sidustu-forvod-til-ad-saekja-um-i-vidskiptahradal-fyrir-graenar-lausnir/ Wed, 04 Mar 2026 10:33:26 +0000 https://klak.is/?p=165254 Umsóknarfrestur í Hringiðu, sex vikna viðskiptahraðal fyrir sprotafyrirtæki með grænar lausnir, rennur út á miðnætti á morgun, 5. mars 2026. Enn er tími fyrir teymi með metnaðarfullar hugmyndir í loftslags- og umhverfismálum að tryggja sér sæti í hraðlinum.

Hringiða er sérsniðin að sprotaverkefnum á fyrstu stigum sem vilja hraða þróun, skerpa viðskiptamódel og byggja upp öflugt tengslanet. Allt að 10 teymi fá aðgang að þéttari handleiðslu sérfræðinga úr atvinnulífinu, markvissum vinnustofum og hagnýtum verkfærum til að koma fyrirtækinu á næsta stig.

„Markmið Hringiðu er að á Íslandi rísi öflug fyrirtæki sem byggja á grænum lausnum og skapi verðmæti fyrir samfélagið,“ segir í kynningu hraðalsins. „Við viljum styðja frumkvöðla sem sjá tækifæri í sjálfbærni og hringrásarhugsun og hjálpa þeim að breyta hugmyndum í raunveruleg áhrif.“

Í Hringiðu fá teymin skýra sýn á viðskiptamódelið, móta þróunaráætlun og skilgreina næstu skref í uppbyggingu sprotafyrirtækisins. Að loknum hraðli gefst þeim tækifæri til að kynna lausnir sínar fyrir fjárfestum og öðrum lykilaðilum í grænu vistkerfi viðskipta.

Hringiða er í umsjón KLAK – Icelandic Startups, sem rekur viðskiptahraðla og styður um 100 sprotafyrirtæki á ári með fræðslu, handleiðslu og tengslamyndun.

Sprotar með grænar lausnir og vilja til að hafa áhrif eru hvattir til að sækja um sem fyrst. Umsóknarfrestur rennur út á miðnætti á morgun, 5. mars 2026.

]]>
Affineva er sigurvegari Gulleggsins 2026 og Lavashow hlýtur Heiðursverðlaun Gulleggsins https://klak.is/affineva-er-sigurvegari-gulleggsins-2026-og-lavashow-hlytur-heidursverdlaun-gulleggsins/ Thu, 26 Feb 2026 18:25:43 +0000 https://klak.is/?p=160485 Lokakeppni Gulleggsins 2026, stærstu og elstu frumkvöðlakeppni Íslands, fór fram í hátíðarsal Grósku í dag þar sem tíu metnaðarfull sprotateymi kynntu hugmyndir sínar fyrir þéttsetnum sal og dómnefnd skipaðri fulltrúum bakhjarla keppninnar.

Keppnin er haldin af KLAK – Icelandic Startups og hefur frá árinu 2008 verið mikilvægur stökkpallur fyrir frumkvöðla með verkefni á hugmyndastigi. Fjöldi sprotafyrirtækja sem nú hafa náð langt á innlendum og erlendum markaði stigu sín fyrstu skref á sviði Gulleggsins.

Í ár tók þátt fjölbreyttur hópur teyma sem spannar allt frá líftækni og sjálfbærri orku yfir í stafrænar lausnir og nýjar leiðir til að nýta gögn, tækni og íslenskar auðlindir og samkeppnin var því mikil.

Gulleggið 2026

Landsbankinn, aðalbakhjarl Gulleggsins, afhenti vegleg peningaverðlaun til þriggja efstu teymanna í lokakeppninni:

  1. sæti: 2.000.000 kr.
  2. sæti: 1.000.000 kr.
  3. sæti: 500.000 kr.

Sigurvegari Gulleggsins 2026 var teymið Affineva sem hlaut 2.000.000 kr. í verðlaun frá Landsbankanum. Hugmynd teymisins snýst um að þróa sértækar líftæknilausnir í greiningu og meðhöndlun sjúkdóma.

Í öðru sæti var teymið IORDEN með lausn sem nýtir gervigreind og sjálfvirkni til að einfalda og bæta gæðaeftirlit hjá smærri matvælaframleiðendum. Teymið fékk 1.000.000 kr.

Í 3. sæti lenti teymið Norrstone með stafrænt vistkerfi fyrir skartgripi – lausn sem byggir á stafrænum skartgripavottorðum á bálkakeðju sem gera auðveldari vottun, tryggingar, vildarkerfi og endursölu. Teymið hlaut 500.000 kr. í verðlaun.

Heiðursegg Gulleggsins 2026 til Lavashow

Heiðursegg Gulleggsins 2026 var veitt fyrirtækinu Lavashow en hugmyndin á bak við fyrirtækið var meðal þeirra tíu hugmynda sem kepptu um Gulleggið árið 2016. Lavashow hefur á síðustu árum vakið mikla athygli fyrir að umbreyta náttúruöflunum í einstaka upplifun fyrir gesti, byggja upp sterkt vörumerki og skapa verðmæti bæði í ferðaþjónustu og skapandi greinum.

Með heiðursegginu er viðurkennt það mikla frumkvöðlastarf, úthald og hugrekki sem liggur að baki því að byggja upp fyrirtæki eins og Lavashow, 

Aukaverðlaun

Auk peningaverðlauna keppa teymi Gulleggsins um margvísleg aukaverðlaun sem veitt eru af bakhjörlum og samstarfsaðilum keppninnar. Þessi verðlaun fela í sér sérhæfða ráðgjöf, aðstöðu og handleiðslu sem hjálpa teymunum að taka næstu skref í þróun hugmynda sinna.

  • Frumukjarninn – líftækniverðlaun Gulleggsins 2026
    Alvotech og Fruman veittu Frumukjarnann til bestu líftæknihugmyndar keppninnar. Verðlaunin samanstóðu af 300.000 kr. þróunarstyrk, þriggja mánaða þróunar- og prófunartækifæri hjá Frumunni, aðgangi að rannsóknarsetri, handleiðslu sérfræðinga í líftækni og sérsmíðuðum verðlaunagrip frá Héðni.
    Frumukjarnann hlaut sigur teymið Affineva.
  • KPMG – sérfræðiráðgjöf fyrir næstu skref
    KPMG veitti einu teymi aukaverðlaun í form 20 klukkustunda ráðgjafar sem nýtist við áætlunargerð, fjárfestakynningar, stofnun félags, skattamál og önnur lykilskref í uppbyggingu sprotafyrirtækis.
    Verðlaun KPMG hlaut E-Lísa.
  • Gróska | Heimar – aðstaða í hjarta nýsköpunar
    Gróska | Heimar veittu einu teymi aðgang að aðstöðu í Grósku, einum öflugasta suðupotti nýsköpunar á Íslandi, sem gerir teyminu kleift að þróa hugmynd sína í nálægð við önnur sprotafyrirtæki og fjárfesta.
    Þessi verðlaun Grósku og Heima hlutu Affineva .
  • Origo – ráðgjöf frá sérfræðingum í sölu, markaðssetningu og stafrænum lausnum
    Origo veitti vinsælasta teyminu í kosningu gesta og áhorfenda ráðgjöf frá sérfræðingum fyrirtækisins, meðal annars í sölu- og markaðsmálum og þróun stafrænnar lausnar.
    Verðlaun Origo fyrir vinsælasta teymið hlaut Deadgroove Games
    .
  • Ungir frumkvöðlar – Junior Achievement Iceland – alþjóðlegt tækifæri í Riga
    Ungir frumkvöðlar – Junior Achievement Iceland veitti einu háskólateymi tækifæri til að taka þátt í GEN-E nýsköpunarkeppninni í Riga í Lettlandi þar sem teymið fær að mæta alþjóðlegum jafningjum og fjárfestum og reyna á hugmynd sína á stærra sviði.
    Verðlaunin hlaut IORDEN.

Nýsköpun sem færir hugmyndir frá sviðinu út í samfélagið

Gulleggið er opið öllum sem hafa hugmynd og vilja prófa sig áfram í nýsköpun, óháð bakgrunni eða reynslu. Þátttakendur fá fræðslu, handleiðslu og tækifæri til að prófa hugmyndir sínar í krefjandi umhverfi, þar sem áhersla er á að læra hratt, þróa áfram og tengjast öflugu vistkerfi frumkvöðla, fjárfesta og sérfræðinga.

„Teymin í Gullegginu í ár sýna enn og aftur hversu fjölbreytt og öflug nýsköpun er á Íslandi. Hér eru frumkvöðlar að leysa raunveruleg vandamál, skapa ný verðmæti og leggja sitt af mörkum til sjálfbærari framtíðar,“ segir Anna Schalk Sóleyjardóttir, verkefnastjóri Gulleggsins. „Við erum sérstaklega þakklát bakhjörlum Gulleggsins sem gera okkur kleift að styðja teymi áfram – ekki bara með peningaverðlaunum heldur líka með raunverulegri aðkomu að þeirra vegferð“

Með lokakeppni Gulleggsins 2026 er enn einni árangursríkri keppni lokið, en fyrir mörg teymi er þetta aðeins fyrsta skrefið. Næstu mánuði munu þau halda áfram að þróa hugmyndir sínar – með aðstoð stuðningsnetsins sem Gulleggið, KLAK og bakhjarlar keppninnar hafa byggt upp.

Nánari upplýsingar um Gulleggið og þátttöku: Gulleggid.is

]]>
Lokakeppni Gulleggsins 2026 á fimmtudag https://klak.is/lokakeppni-gulleggsins-2026-a-fimmtudag/ Mon, 23 Feb 2026 12:06:46 +0000 https://klak.is/?p=160179 Lokakeppni Gulleggsins 2026 fer fram í Hátíðarsal Grósku næstkomandi fimmtudag, 26. febrúar, klukkan 15:30 – 18:00. Þá stíga tíu metnaðarfull teymi á svið og kynna nýsköpunarhugmyndir sem eiga það sameiginlegt að leita lausna á áskorunum framtíðarinnar, allt frá líftækni og stafrænum lausnum til skemmtunar, umhverfis- og matvælalausna.

Viðburðinn leiðir Steiney Skúladóttir og má búast við bæði fróðlegri og skemmtilegri dagskrá þar sem hugmyndirnar fá að njóta sín á stóra sviðinu. Í lok keppni verður boðið upp á léttar veitingar og drykki, og gefst gestum tækifæri til að spjalla við teymin, dómnefnd og aðra gesti við gróðurvegginn í Grósku.

Lokakeppnin er opin öllum sem hafa áhuga á nýsköpun og frumkvöðlastarfi, hvort sem þú ert sjálf(ur) með hugmynd í maganum, starfar í atvinnulífinu eða vilt einfaldlega fylgjast með næstu hugmyndum Íslands fæðast. Við hvetjum þig eindregið til að mæta, taka þátt í stemningunni og styðja við íslenskt frumkvöðlastarf.

Fyrir þá sem komast ekki á staðinn verður keppnin einnig í beinni útsendingu á Vísir.is.

Hér má sjá nánari umfjöllun um þau tíu teymi sem keppa um Gulleggið 2026: Ljóst er hvaða 10 teymi keppast um Gulleggið 2026!

]]>
KLAK klifrar upp lista Financial Times yfir fremstu stuðningsaðila nýsköpunar í Evrópu https://klak.is/klak-klifrar-upp-lista-financial-times-yfir-fremstu-studningsadila-nyskopunar-i-evropu/ Fri, 20 Feb 2026 15:45:43 +0000 https://klak.is/?p=159003 KLAK – Icelandic Startups hefur í annað árið í röð verið valið á lista Financial Times, Sifted og Statista yfir fremstu stuðningsaðila nýsköpunar í Evrópu, Europe’s Leading Start-up Hubs. KLAK klifrar nú upp um þrettán sæti frá fyrra ári þrátt fyrir að um þúsund fleiri nýsköpunarmiðstöðvar hafi verið metnar að þessu sinni.

Á hverju ári framkvæmir Financial Times í samstarfi við Statista ítarlega greiningu á þúsundum nýsköpunarmiðstöðva í Evrópu. Aðeins 180 miðstöðvar hljóta sæti á listanum og er því um mikla viðurkenningu að ræða á vinnu þeirra sem styðja við frumkvöðla og sprotafyrirtæki.

„Það er gríðarlegur heiður að vera aftur á þessum lista – og sérstaklega að hækka um þrettán sæti á milli ára á sama tíma og samkeppnin eykst. Þetta er skýr staðfesting á gæðum þeirrar þjónustu sem KLAK veitir frumkvöðlum og sprotafyrirtækjum á Íslandi, og sýnir jafnframt að íslenskt nýsköpunarumhverfi stenst samanburð við það sem best gerist erlendis,“ segir Ásta Sóllilja Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri KLAK – Icelandic Startups.

Við val á Europe’s Leading Start-up Hubs er meðal annars horft til umsagna fyrrverandi þátttakenda í viðskiptahröðlum, mati sérfræðinga á borð við fjárfesta, frumkvöðla og fræðimanna, ásamt árangri efnilegustu sprotafyrirtækjanna sem hafa farið í gegnum viðkomandi miðstöð.

Ásta segir að viðurkenningin sé ekki síst til vitnis um styrk vistkerfisins í heild:

„Að baki þessum árangri standa fjölmargir aðilar – frumkvöðlarnir sjálfir, öflugir samstarfsaðilar, mentorar, bakhjarlar og faglegt teymi KLAK. Við sjáum þessa viðurkenningu sem sameiginlegan sigur íslensks nýsköpunarumhverfis og hvatningu til að halda áfram að byggja upp sterkt stuðningsnet fyrir sprotafyrirtæki á öllum stigum.“

KLAK hefur í rúmlega tvo áratugi unnið að því að efla sprotaumhverfið á Íslandi með fjölbreyttum verkefnum og hröðlum. Verkefni á borð við Gulleggið, Startup SuperNova, Startup Tourism, Hringiðu og Dafna hafa hjálpað fjölda frumkvöðla að þróa hugmyndir sínar áfram, styrkja rekstur sinn og í mörgum tilvikum hasla sér völl utan landsteinanna.

„Að fá viðurkenningu frá jafn virtum alþjóðlegum aðilum og Financial Times, Sifted og Statista styrkir okkur í þeirri trú að sú leið sem við höfum valið – þar sem samvinna, handleiðsla og aðgengi að sérfræðiþekkingu eru í lykilhlutverki – skili raunverulegum áhrifum,“ segir Ásta. „Við ætlum að nýta þennan vind í seglin til að halda áfram að styðja frumkvöðla, hraða vexti sprotafyrirtækja og skapa enn meiri verðmæti fyrir íslenskt samfélag. Við hjá KLAK erum ákaflega þakklát fyrir traustið og stuðninginn sem við fáum frá frumkvöðlum, samstarfsaðilum og bakhjörlum og hlökkum til að halda áfram að ryðja brautina fyrir næstu kynslóð sprotafyrirtækja á Íslandi.”

]]>
Ljóst er hvaða 10 teymi keppast um Gulleggið 2026!  https://klak.is/ljost-er-hvada-10-teymi-keppast-um-gulleggid-2026/ Mon, 16 Feb 2026 14:57:21 +0000 https://klak.is/?p=158512 Tíu teymi hafa verið valin til þátttöku í Lokakeppni Gulleggsins 2026, einnar stærstu og rótgrónustu frumkvöðlakeppni landsins. Valið fór fram í kjölfar Masterclass Gulleggsins sem haldinn var nýverið í hátíðarsal Grósku og var námskeiðið opið öllum. Sérfræðingar, frumkvöðlar og neglur úr atvinnulífinu miðluðu sinni þekkingu til þátttakenda og í kjölfarið var opnað fyrir umsóknir í Lokakeppni Gulleggsins. 

Gulleggið er frumkvöðlakeppni á hugmyndastigi og hefur verið haldin árlega síðan 2008 af KLAK – Icelandic Startups. Keppnin er opin öllum, jafnt hugmyndasmiðum sem áhugafólki um nýsköpun, og hefur í gegnum árin reynst mikilvægur stökkpallur fyrir ný fyrirtæki og frumkvöðla á Íslandi.

Lokakeppni Gulleggsins fer fram 26. febrúar í hátíðarsal Grósku og verður keppninni streymt í beinni útsendingu á Vísir.is

Þau tíu teymi sem keppa um Gulleggið 2026 eru eftirfarandi: 

Affineva

Markmið Affineva er að þróa sértækar líftæknilausnir í greiningu og meðhöndlun sjúkdóma.

Araxni

Líftækniframleitt köngulóarsilki fyrir sjávarútveg, textíl og fleira. Vefjum nýja framtíð – úr silki ekki plasti.

Dýragáttin

Dýragáttin er eins og Heilsuvera fyrir dýr. Þar er hægt að finna allar upplýsingar um bólusetningar, örmerkingar, dýralæknaheimsóknir og annað sem tengist dýrunum okkar.

E-Lísa

E-Lísa dregur úr áhættu í jarðvarmaþróun og tryggir að borholur skili áreiðanlegum og fyrirsjáanlegum afköstum.

IORDEN

Hagkvæmur og sjálfvirkur gæðastjóri sem gerir smærri matvælaframleiðendum kleift að vera með allt IORDEN.

Le Bát

Afhendum sjávargögn á sjálfbæran máta

Norrstone

Norrstone – Stafrænt vistkerfi fyrir vottun, tryggð viðskiptavina, tryggingar og endursölu skartgripa.

Ókind

Ókind notar líftækni til að þróa nýtt efni úr íslenskri ull.

Replay! The Musical

Replay! The Musical er söngleikja-og hryntölvuleikur þar sem þú, leikmaðurinn, ferð með aðalhlutverkið.

STRUX

Markmið STRUX er að einfalda og hraða ferli byggingarleyfa.

Ókind

Ókind notar líftækni til að þróa nýtt efni úr íslenskri ull.

]]>
Vel heppnaður Masterclass Gulleggsins https://klak.is/vel-heppnadur-masterclass-gulleggsins/ Mon, 16 Feb 2026 14:51:31 +0000 https://klak.is/?p=158507 Vel heppnaður Masterclass Gulleggsins: tveir þéttskipaðar dagar af fræðslu, handleiðslu og tengslamyndun

Masterclass Gulleggsins fór fram helgina 30.–31. janúar í Grósku og í beinu streymi og tókst einstaklega vel. Fjöldi frumkvöðla og hugmynda­smiða nýtti tækifærið til að vinna markvisst með viðskiptahugmyndir sínar, fá faglega handleiðslu og efla tengsl við aðra þátttakendur og sérfræðinga í nýsköpunarumhverfinu.

Dagskráin var hönnuð til að leiða þátttakendur í gegnum alla lykilþætti góðs pitch deck – frá fyrstu hugmynd að teymi og fjármögnun. Á föstudeginum hófst dagskráin með opnun KLAK þar sem þátttakendur undirbjuggu sig fyrir tveggja daga vinnusmiðju. Síðan var farið beint í kjarnann: Sirrý fór yfir hvernig á að koma rétt fram, þannig að lausnin nái strax athygli, Freyr greindi „vandamálið“ og hjálpaði teymum að skýra sársaukapunkta markhópsins, Guðrún frá Keeps tók fyrir „viðskiptavin og markað“ og hjálpaði þátttakendum að skilgreina markhópa og stærð markaðar.

Síðar um daginn fjallaði Gísli Ragnar frá KPMG um „AI / Why now“ og sýndi hvernig tæknibreytingar og gervigreind skapa ný tækifæri fyrir sprota. Þá leiddi Kristinn Ankeri vinnu um „lausnina“ og hvernig best er að útskýra virði vörunnar á skýran og trúverðugan hátt, áður en Harpa frá Hoobla fór yfir „teymið“ og mikilvægi þess að draga fram styrkleika og hlutverk hvers og eins. Deginum lauk með innblásinni „Why now?“ stofnendasögu frá Erlingi hjá Controlant, þar sem hann miðlaði dýrmætri reynslu af uppbyggingu hraðvaxtarfyrirtækis.

Á laugardeginum var fókusinn færður enn frekar yfir í fjárfestasýn og næstu skref í þróun sprota. Eftir opnun KLAK tók Alma frá HEIMA við og sýndi í verki „hvernig á að gera fjárfestakynningu“ sem talar til fjárfesta og undirstrikar vöxt og tækifæri. Eyþór frá Hopp fjallaði um „samkeppni“ og hvernig sprotar geta byggt raunverulegt samkeppnisforskot, og Sunna fór yfir „tekju- og kostnaðaráætlun“ og gerði flóknar fjármálaspurningar aðgengilegar og hagnýtar.

Eftir hádegishlé deildi Guðjón úr SagaReg reynslusögu sinni og talaði um sveigju, þrautseigju og lærdóm á leið frumkvöðulsins. Þá tók Ásta Sóllilja við með sófaspjall um „fjármögnun“ þar sem fulltrúar úr sprota- og styrkjavistkerfinu, frá RANNÍS, Kríu og MGMT, fóru yfir raunhæfar leið til að fjármagna næstu skref í uppbyggingu sprota.

Dagskránni lauk svo á opnu sviði og léttu „happy hour“ þar sem þátttakendur fengu að æfa lyftukynningar, prófa hugmyndir sínar í öruggu umhverfi.

Virðisaukinn fyrir þátttakendur felst ekki aðeins í fræðslunni heldur í því að fara með hugmyndina í gegnum heildstætt ferli. Eftir Masterclass standa teymi eftir með fyrstu drög af pitch deck, betur útfærð vandamál og lausn, skýrari mynd af markaði og viðskiptavinum, raunhæfar tekju- og kostnaðaráætlanir og betri skilning á því hvernig nálgast má fjárfesta og styrki. Jafnframt fengu þau að kynnast öðrum frumkvöðlum, deila áskorunum og lærdómi og kynnast styrku stuðningsneti sérfræðinga og leiðbeinenda.

Meðfylgjandi eru myndir frá Masterclass og upptökur af fyrirlestrum, þannig að þátttakendur geta rifjað upp lykilatriði og þeir sem komust ekki í Grósku að þessu sinni geta fylgst með og undirbúið sig fyrir næstu skref í Gullegginu. Masterclass er fyrsta stóra stökk þátttakenda í átt að því að umbreyta hugmynd í raunverulegt sprotafyrirtæki – og niðurstöðurnar í ár sýna að mikill kraftur og hugvit býr í næstu kynslóð íslenskra frumkvöðla.

]]>
Office Hours með KPMG https://klak.is/office-hours-med-kpmg/ Mon, 16 Feb 2026 13:07:26 +0000 https://klak.is/?p=158481 Office hours er viðbótarþjónusta KLAK VMS mentoraþjónustunnar þar sem fyrrum þátttakendur viðskiptahraðla KLAK og Dafna geta bókað 30 mínútna fundi með reyndum sérfræðingum úr hópi mentora eða frá samstarfsaðilum KLAK VMS, sér að kostnaðarlausu. Á fundunum gefst þátttakendum kostur á að fá hagnýt ráð og leiðsögn sem tengist uppbyggingu og rekstri sprotafyrirtækis þeirra. Dæmi um efni eru lagaleg málefni, hugverkaréttur og mannauðsmál.

Þann 17. febrúar n.k. munu sérfræðingar frá KPMG bjóða upp á Office Hours fundi í Grósku.

KPMG hefur í meira en áratug verið traustur bakhjarl nýsköpunarfyrirtækja og virkur þátttakandi í uppbyggingu nýsköpunarumhverfisins á Íslandi. 

KPMG veitir nýsköpunarfyrirtækjum, fjárfestum og öðrum sem tengjast nýsköpun fjölbreytta þjónustu og ráðgjöf á sviði endurskoðunar og reikningsskila, lögfræði og skattamála auk ráðgjafaþjónustu. Jafnframt á KPMG í traustu samstarfi við bókhalds- og launaþjónustu ECIT.

Þátttakendur fá tölvupóst með skráningarhlekk 
Ef þú fékkst ekki póst en vilt láta bæta þér á listann máttu gjarnan hafa samband við okkur í [email protected] 

]]>