Ósar https://osar.is/ Lífæð heilbrigðis Wed, 03 Sep 2025 11:45:57 +0000 en-GB hourly 1 https://wordpress.org/?v=6.9.4 https://osar.is/wp-content/uploads/2022/04/cropped-Osar_mini-1-32x32.png Ósar https://osar.is/ 32 32 Jafnréttisáætlun Ósa https://osar.is/2025/03/jafnrettisaaetlun-osa/ Thu, 27 Mar 2025 13:32:40 +0000 https://osar.is/?p=5569 Í jafnréttisáætlun Ósa er lögð áhersla á jafnan rétt og jafna stöðu starfsfólks, óháð kyni. Tilgangur hennar er að tryggja jafnrétti á vinnustaðnum með það að markmiði að þekking, lausnamiðuð og fagleg vinnubrögð, starfsánægja og framúrskarandi þjónusta sé grundvallarforsenda árangurs. Við leggjum áherslu á sjálfstæði, ábyrgð, faglegt vinnuumhverfi, möguleikann á starfsþróun og haft er að

The post Jafnréttisáætlun Ósa appeared first on Ósar.

]]>
Í jafnréttisáætlun Ósa er lögð áhersla á jafnan rétt og jafna stöðu starfsfólks, óháð kyni. Tilgangur hennar er að tryggja jafnrétti á vinnustaðnum með það að markmiði að þekking, lausnamiðuð og fagleg vinnubrögð, starfsánægja og framúrskarandi þjónusta sé grundvallarforsenda árangurs. Við leggjum áherslu á sjálfstæði, ábyrgð, faglegt vinnuumhverfi, möguleikann á starfsþróun og haft er að leiðarljósi að upplýst starfsfólk er ánægðara í starfi.

The post Jafnréttisáætlun Ósa appeared first on Ósar.

]]>
Jafnlaunastefna Ósa https://osar.is/2025/03/jafnlaunastefna-osa/ Thu, 27 Mar 2025 13:30:01 +0000 https://osar.is/?p=5567 Jafnlaunastefna Ósa hf. er launastefna og nær til allra starfsmanna fyrirtækisins. Markmið jafnlaunastefnu er að tryggja að allt starfsfólk njóti jafnra og sömu kjara fyrir sömu eða jafnverðmæt störf þannig að ómálefnalegur launamunur sé ekki til staðar. Sé óútskýrður launamunur til staðar skal stöðugt unnið að því að útrýma honum. Forstjóri Ósa hf. ber

The post Jafnlaunastefna Ósa appeared first on Ósar.

]]>

Jafnlaunastefna Ósa hf. er launastefna og nær til allra starfsmanna fyrirtækisins. Markmið jafnlaunastefnu er að tryggja að allt starfsfólk njóti jafnra og sömu kjara fyrir sömu eða
jafnverðmæt störf þannig að ómálefnalegur launamunur sé ekki til staðar. Sé óútskýrður launamunur til staðar skal stöðugt unnið að því að útrýma honum.

Forstjóri Ósa hf. ber ábyrgð á jafnlaunakerfinu og að það sé í samræmi við gildandi lög og reglugerðir sem fjalla um jafna stöðu og jafnan rétt fólks, óháð kyni. Framkvæmdastjórar Ósa bera ábyrgð á að stefnunni sé framfylgt. Mannauðsstjóri er fulltrúi stjórnenda varðandi jafnlaunakerfið og er ábyrgur fyrir innleiðingu og viðhaldi þess í samræmi við jafnlaunastaðalinn ÍST 85.

 

The post Jafnlaunastefna Ósa appeared first on Ósar.

]]>
Árleg launagreining https://osar.is/2025/03/omarktaekur-kynbundinn-launamunur-i-arlegri-launagreiningu/ Thu, 27 Mar 2025 13:27:51 +0000 https://osar.is/?p=5563 Í árlegri launagreiningu fyrirtækisins, sem fram fór í nóvember 2024, mældist kynbundinn munur á heildarkjörum 0,18%, konum í vil. Niðurstöðurnar gefa til kynna að enginn marktækur launamunur sé á milli kynja. Launagreiningin er liður í að uppfylla skilyrði jafnlaunavottunar, sem felur í sér að fyrirtæki setji sér markmið og verklag til að tryggja jafna meðferð

The post Árleg launagreining appeared first on Ósar.

]]>
Í árlegri launagreiningu fyrirtækisins, sem fram fór í nóvember 2024, mældist kynbundinn munur á heildarkjörum 0,18%, konum í vil. Niðurstöðurnar gefa til kynna að enginn marktækur launamunur sé á milli kynja.

Launagreiningin er liður í að uppfylla skilyrði jafnlaunavottunar, sem felur í sér að fyrirtæki setji sér markmið og verklag til að tryggja jafna meðferð í launamálum. Jafnlaunavottun er viðurkennt vottunarferli sem miðar að því að útrýma kynbundnum launamun og stuðla að auknu gagnsæi og trausti í launaákvörðunum.

Með reglubundinni greiningu og skýru verklagi leitast fyrirtækið við að tryggja að laun séu ákvörðuð á hlutlægan, málefnalegan og réttlátan hátt fyrir allt starfsfólk.

The post Árleg launagreining appeared first on Ósar.

]]>
Læknadagar haldnir með pompi og prakt https://osar.is/2025/02/icepharma-a-laeknadogum/ Mon, 17 Feb 2025 14:31:56 +0000 https://osar.is/?p=5226 The post Læknadagar haldnir með pompi og prakt appeared first on Ósar.

]]>
The post Læknadagar haldnir með pompi og prakt appeared first on Ósar.

]]>
Tannheilsudeild Icepharma á Tannlæknaþingi https://osar.is/2025/02/tannheilsudeild-icepharma-a-tannlaeknathingi/ Mon, 17 Feb 2025 14:10:17 +0000 https://osar.is/?p=5219 Tannheilsusvið Icepharma tók virkan þátt í Tannlæknaþingi 2024, sem haldið var í Reykjavík í október. Þingið var vel sótt af tannlæknum, tannfræðingum, tanntæknum og öðrum sérfræðingum í tannheilsu, og bauð upp á fjölbreytt erindi, nýjustu tækni og vörur á markaðnum. Icepharma kynnti þar nýjungar á sviði tannheilsu og bauð gestum upp á fræðslu um áhrifaríkar

The post Tannheilsudeild Icepharma á Tannlæknaþingi appeared first on Ósar.

]]>
Tannheilsusvið Icepharma tók virkan þátt í Tannlæknaþingi 2024, sem haldið var í Reykjavík í október. Þingið var vel sótt af tannlæknum, tannfræðingum, tanntæknum og öðrum sérfræðingum í tannheilsu, og bauð upp á fjölbreytt erindi, nýjustu tækni og vörur á markaðnum.

Icepharma kynnti þar nýjungar á sviði tannheilsu og bauð gestum upp á fræðslu um áhrifaríkar lausnir til bætingar á tannheilbrigði. Á bás fyrirtækisins fengu gestir að kynna sér nýjustu vörurnar frá þekktum vörumerkjum á borð við Straumann, Geistlich, 3Shape og fleirum. Gestir fengu að prófa nýjustu tæknina og fá ráðgjöf frá starfsfólki Tannheilsusviðs Icepharma.

„Við erum afar ánægð með viðtökurnar á Tannlæknaþingi 2024. Það er okkur mikilvægt að vera í góðu sambandi við tannlækna og aðra sérfræðinga í greininni, kynna þeim nýjustu lausnirnar og hlusta á þarfir þeirra.“ – Hlynur Hafsteinsson, deildarstjóri Tannheilsusviðs hjá Icepharma.

Þátttaka Icepharma á þinginu endurspeglar skuldbindingu fyrirtækisins við framþróun í tannlækningum og tannvernd á Íslandi. Með nýjum vörum og lausnum stuðlar fyrirtækið að bættri tannheilsu landsmanna og styður fagfólk við að veita skjólstæðingum sínum bestu mögulegu þjónustu.

Tannlæknaþingið 2024 reyndist góður vettvangur fyrir faglegt samtal og tengslamyndun, og Icepharma hlakkar til að taka þátt að nýju á næsta þingi.

The post Tannheilsudeild Icepharma á Tannlæknaþingi appeared first on Ósar.

]]>
Segulómtæki til Íslenskrar myndgreiningar https://osar.is/2025/02/segulomtaeki-til-islenskrar-myndgreiningar/ Mon, 17 Feb 2025 11:28:19 +0000 https://osar.is/?p=5214 The post Segulómtæki til Íslenskrar myndgreiningar appeared first on Ósar.

]]>
The post Segulómtæki til Íslenskrar myndgreiningar appeared first on Ósar.

]]>
Velferðartæknideild Icepharma á velferðartæknimessu https://osar.is/2025/02/velferdartaeknideild-icepharma-a-velferdartaeknimessu/ Mon, 17 Feb 2025 11:26:59 +0000 https://osar.is/?p=5212 The post Velferðartæknideild Icepharma á velferðartæknimessu appeared first on Ósar.

]]>
The post Velferðartæknideild Icepharma á velferðartæknimessu appeared first on Ósar.

]]>
Ósar hlýtur viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2024 https://osar.is/2025/02/osar-hlytur-vidurkenningu-jafnvaegisvogarinnar-2024/ Mon, 17 Feb 2025 11:15:12 +0000 https://osar.is/?p=5208 Ósar hlaut Jafnvægisvogina, við hátíðlega athöfn Félags kvenna í atvinnulífinu (FKA), sem haldin var í október 2024.   Dr. Ásta Dís Óladóttir, prófessor við Háskóla Íslands og formaður Jafnvægisvogarinnar opnaði hátíðina og hrósaði stjórnendum fyrir eftirtektarverðan árangur í jafnréttismálum.  Þá flutti Katrín Jakobsdóttir einkar skemmtilegt og hvetjandi ávarp og fór yfir stöðuna í jafnréttismálum í samfélaginu

The post Ósar hlýtur viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2024 appeared first on Ósar.

]]>
Ósar hlaut Jafnvægisvogina, við hátíðlega athöfn Félags kvenna í atvinnulífinu (FKA), sem haldin var í október 2024.  

Dr. Ásta Dís Óladóttir, prófessor við Háskóla Íslands og formaður Jafnvægisvogarinnar opnaði hátíðina og hrósaði stjórnendum fyrir eftirtektarverðan árangur í jafnréttismálum. 

Þá flutti Katrín Jakobsdóttir einkar skemmtilegt og hvetjandi ávarp og fór yfir stöðuna í jafnréttismálum í samfélaginu almennt og uppskar mikið lófaklapp. 

Yfirlýst markmið Jafnvægisvogarinnar er að jafna hlutfall kynja í efsta lagi stjórnunar fyrirtækja í íslensku viðskiptalífi en í dag eru konur eingöngu 24% framkvæmdastjóra fyrirtækja á Íslandi. Ósar eru þess vegna vel að viðurkenningunni komin þar sem kynjahlutfall er hnífjafnt í stjórn og framkvæmdastjórn samstæðunnar. 

Á undanförnum árum hafa rannsóknir á málefninu leitt í ljós mikilvægi kynjajafnrar forystu. Fyrirtæki með slíkt jafnvægi sýna alla jafna betri stjórnunarhætti, leggja aukna áherslu á samfélagslega ábyrgð og sýna fram á aukin gæði í þjónustu og rekstri. 

The post Ósar hlýtur viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2024 appeared first on Ósar.

]]>
Æfing til styrktar Einstökum börnum https://osar.is/2025/02/aefing-til-styrktar-einstokum-bornum/ Mon, 17 Feb 2025 11:09:16 +0000 https://osar.is/?p=5206 Á árinu 2024 stóð H verslun, sem er í eigu Icepharma, fyrir fjölmörgum viðburðum sem stuðluðu að bættri heilsu og vellíðan. Einn af hápunktum ársins var sérstakur æfingatími sem haldinn var í Sjálandi til styrktar Einstökum börnum, samtökum sem styðja við börn með sjaldgæfa sjúkdóma og fjölskyldur þeirra. Æfingin, sem fór fram í maí 2024,

The post Æfing til styrktar Einstökum börnum appeared first on Ósar.

]]>
Á árinu 2024 stóð H verslun, sem er í eigu Icepharma, fyrir fjölmörgum viðburðum sem stuðluðu að bættri heilsu og vellíðan. Einn af hápunktum ársins var sérstakur æfingatími sem haldinn var í Sjálandi til styrktar Einstökum börnum, samtökum sem styðja við börn með sjaldgæfa sjúkdóma og fjölskyldur þeirra.

Æfingin, sem fór fram í maí 2024, var leidd af Karitas Maríu Lárusdóttur. Viðburðurinn vakti mikla athygli og seldist upp á skömmum tíma, með 75 þátttakendum sem komu saman til að hreyfa sig og styrkja gott málefni. Karitas María á persónulega tengingu við samtökin, þar sem vinkona hennar, Guðrún Nielsen, á son með Dravet-heilkenni. Í viðtali við mbl.is sagði Karitas María: “Ég viðurkenni að ég varð frekar meyr,” og vísaði þar til þeirrar miklu samkenndar og stuðnings sem hún upplifði á viðburðinum.

Þessi viðburður er gott dæmi um viðleitni starfsfólks H verslunar til að leggja sitt af mörkum til samfélagsins og styðja við góðgerðarmál sem skipta máli fyrir viðskiptavini og samfélagið í heild.

The post Æfing til styrktar Einstökum börnum appeared first on Ósar.

]]>
Þátttaka á heilsudögum https://osar.is/2025/02/thatttaka-a-heilsudogum/ Mon, 17 Feb 2025 10:56:26 +0000 https://osar.is/?p=5203 Heilsudeild Icepharma hefur um árabil tekið virkan þátt í heilsudögum endursöluaðila á Íslandi, og árið 2024 var engin undantekning. Icepharma tók meðal annars þátt í heilsudögum verslana eins og Nettó, Hagkaups og Fjarðarkaups, sem fóru fram bæði í ársbyrjun og síðar á haustmánuðum. Þátttaka Icepharma á þessum viðburðum er fjölbreytt og gagnleg fyrir neytendur. Á

The post Þátttaka á heilsudögum appeared first on Ósar.

]]>
Heilsudeild Icepharma hefur um árabil tekið virkan þátt í heilsudögum endursöluaðila á Íslandi, og árið 2024 var engin undantekning. Icepharma tók meðal annars þátt í heilsudögum verslana eins og Nettó, Hagkaups og Fjarðarkaups, sem fóru fram bæði í ársbyrjun og síðar á haustmánuðum.

Þátttaka Icepharma á þessum viðburðum er fjölbreytt og gagnleg fyrir neytendur. Á heilsudögum gefst landsmönnum tækifæri til að kaupa bæði matvöru og bætiefni á hagstæðu verði. Jafnframt leggur Icepharma mikla áherslu á fræðslu um heilbrigðan lífsstíl og veljum við vörur sem stuðla að bættri heilsu og vellíðan.

Starfsfólk heilsudeildar Icepharma, í samstarfi við markaðssvið fyrirtækisins, hefur sýnt mikinn metnað og elju í því að koma heilsusamlegum vörum og gagnlegum upplýsingum á framfæri til landsmanna. Þessi viðburðir eru því ekki aðeins sölutækifæri heldur einnig mikilvægt tækifæri til að stuðla að heilsueflingu og aukinni vitund neytenda um hollari valkosti.

The post Þátttaka á heilsudögum appeared first on Ósar.

]]>