Starfsfólk

Vala Karen Viðarsdóttir – Framkvæmdastjóri

Vala Karen Viðarsdóttir er framkvæmdastjóri Félags Sameinuðu þjóðanna. Hún hóf störf hjá Félagi Sameinuðu þjóðanna haustið 2021. Vala er menntaður mannfræðingur frá Háskóla Íslands og með MA-gráðu í alþjóðasamskiptum frá sama skóla auk þess að búa yfir nokkurra ára reynslu af alþjóðastarfi og mannúðarmálum. Hún vann hjá UNICEF á Íslandi 2016-2018 sem sérfræðingur í fjáröflun en hún starfaði einnig fyrir samtökin í Slóvakíu árið 2019 sem umsjónarmaður gjafatengsla og kynningarmála. Auk þess sat Vala í framkvæmdanefnd samtakanna WOMEN POWER 2021-2023 en félagasamtökin vinna á heildstæðan hátt að valdeflingu kvenna í Tansaníu. Vala situr í Sjálfbærniráði Íslands fyrir hönd FSÞ.

Netfang Völu: [email protected]

 

Pétur Hjörvar Þorkelsson – Verkefnastjóri kynningar- og fræðslumála

Pétur Hjörvar er verkefnastjóri kynningar- og fræðslumála. Hann hóf störf hjá Félagi Sameinuðu þjóðanna haustið 2024. Pétur Hjörvar er menntaður mannfræðingur frá Há­skóla Íslands og með M.Ed. gráðu í Menntunarfræðum og margbreytileika, með veigamikla þekkingu á Sameinuðu þjóðunum og fræðslu-, þróunar- og skólastarfi. Hann hefur meðal annars starfað sem götukynnir hjá Landsnefnd UN Women, unnið á frístundaheimilum og félagsmiðstöðvum og verið aðstoðarrannsakandi og -kennari við Háskóla Íslands.

Pétur starfaði hjá UNICEF á Íslandi frá 2018-2024 og á landsskrifstofu UNICED í í Naíróbí í Kenía, þar sem hann vann á sviði félags- og hegðunarbreytinga (e. Social and Behavioral Change) í tengslum við loftslagsmál og vatns- og hreinlætismál.

Netfang Péturs: [email protected]